Beztuztu beztu vinir!

Ljótur Svipur!

24.09.2007 20:31:46 / Fannzý

Jaaa...

Jaaa ætti maður að bloga segiði...

Uu ég bara vitiði, leiðinlegt að segja það en jaaá ég er ekki frá því að við séum bara óver...:S Nennir enginn þessu sko... Ekki Ingibjörg einusinni og þá er þetta nú orðið lélegt..

En já það er langt síðan við hittumst síðast meiraðsegja.. Karó náttlega að nöllast í Staðaskála sem er GLATAÐ!! Og svo eru duglegur stelpurnar bara á fullu í skólanum! ég er svo stolt af þeim:haha:
Ég og Ingibjörg vorum aðeins að ræða saman og bara ákváðum að fyrst Nína er alltaf að beila þá verður bara hittingur án hennar og ef Karó ætlar að setjast að í Staðarskála verður bara hittingur  án hennar.. Hvað segir um það Kristín??


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 00:04:12 / Karó

home

Ég er heima og fer á laugardagsmorgun!     

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 00:04:28 / Karó

komin heim

Ég er komin heim í 5 daga frí..

Fer aftur 8:30 á laugardagsmorgun 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 18:40:01 / Karó

Koma heim

Ég er að fara að koma heim á morgun. Veit ekki alveg hvenær á morgun ég kem

djamm?


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 22:26:17 / Fannzý

Smá blog

Hæhæ..

Ég ætla að bloga smávegis.. Síðasliðin fimmtudag var sumsé matur hjá Kristínu og hún allveg að deyja úr leti og nennti ekki að elda og panntaði pizzu..!8| neeei  segi bara svona;) það er ágætt að borða smá pizzu líka:) en þetta var rosa gaman og það komu sögur eða comment öllu heldur frá henni Karólínu og ég er búin að skrifa þau inn:) loxins:) En gellz;) við plönuðum ekki næsta mat.. Við verðum eiginlega að hafa allavega einn mat og kannski smá "parí" eða bara hitting einhvern og legja spólu eða bara spjalla og hafa notarlegt eða fara út að borða eða eitthvað þess hátta.. Hvernig lýst ykkur á??

En annar þá ér ég og Karó að byrja í prófum á morgun, Ensku próf:) svo er ég , veit ekki með Karó, búin 15 maí..:D:D

En ég nenni ekki að hafa þetta lengra, ekkert hvað ég á að segja..:)
Later:)


» 12 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 17:56:35 / Nína

Hæhæ, bara blogga til að blogga ;)

Kannski að maður bloggi, bara smá pínu aðeins. Ég veit ekkert hvort þetta virkar því ég er í Mac tölvu og mér hefur skilist að Kristín bloggi ekki vegna þess að það sé ekki hægt úr Macca... En ef þið eruð að lesa þetta býst ég við að þetta virki bara alveg hreint prýðilega. Ég hef nú samt ekki mikið að segja, það er geggjað stuð, að vanda, í MA og hvað... 3 vikur í próf. VMA-ingar eru svo að byrja í prófum og ég vil bara óska þeim öllum góðs gengis Örugglega slatta ljúft að skella sér snemma í sumarfrí, en ég er ekkert sorrí yfir því að þurfa að "húka" í skólanum. Mér finnst það bara alls ekkert leiðinlegt, en mér hefur sussum verið sagt að ég sé ekki eins og fólk sé flest... Ööö... Jú, svo er nú matur hjá Kristínu Örnu eftir svona 2 tíma. Ég ætla að mæta snemma og hjálpa henni að "elda," ég veit ekki hvort ég má segja, en ég held nú barasta að skvísan ætli að panta handa okkur pizzu. Mikil eldamennska þar á ferð, gott ég get hjálpað, hehe. En annars líst mér stórvel á þessa hugmynd elsku Kristínin mín. Ég held að það hafi ekki verið matur hjá okkur (við höfum samt auðvitað borðað) í alveg 2 mánuði eða e-ð svoleiðis... Sjokkerandi! Hlakka til! Hver hlakkar til? Jú ÉG hlakka til, er þaggi Ingibjörg? Hún er orðin svo klár í góðu og vönduðu máli, þessi elska. Fleira held ég að það sé nú ekki í bili. Við bara heyrumst og sjáumst og ummm... gleðilegt sumar og gleðileg próf. Heilsist ykkur Nína

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 16:48:35 / Karó

Minningar og fleira!

Jáááá 17 dagar síðan síðasta blogg.

 

 

Þá þarf ég að koma með eitt ömurlega leiðinlegt blogg bara til að blogga:haha:

 

 

Á meðan að ég var að taka til áðan þá allt í einu kom uppí hugann á mér(váá hvað þetta er asnaleg setning) þegar við vorum í 9. bekk held ég, og við bekkurinn fórum niður á heilsugæslustöð að tala við einhvern lækni.

Og við bekkurinn nátturlega eins og við vorum, gátum talað smá. Og þegar læknirinn sagði að símar væru eins og dóp. Að við værum dópistar útaf því að við værum háð símunum okkar. Og allt fór í háaloft!8|

Við rifum kjaft, útaf því að við vildum sko ekki vera kölluð dópistar.

Og við vorum fyrsti bekkurinn sem að fór, og útaf því að við vorum svona “ókurteis” þá fengu hinir bekkirnir ekki að fara...

 

 

Og þegar maður hugsar til baka til þessa ágæta dags, þá skellir maður bara uppúr....hátt..;)

 

 

Hey pæliði í því... ÉG fór á bókasafnið í dag og tók mér bók. Ég veit ekki hvað það eru mörg ár síðan þetta gerðist síðast.

Og ég er að pæla að fara að gera þetta að vana. Að fara að lesa. Þó ég viti ekki alveg hvað það gangi lengi.

Minka tölvunotkun, vera minna í tölvunni á kvöldin, eða í staðin fyrir að fara í tölvuna þegar ég kem heim, að fara að lesa:D

 

 

Svo eru bara 18 dagar eftir að skólanum. Eða ef ég tel að síðasta prófinu. Á bara eftir að fara í 4 kennslustundir og 5 próf. = 9 dagar í skólann.:haha::haha:

 

 

Svo ef að ég ætla í skóla á næsta ári, þá fer ég á viðskiptabraut. Verð þá kannski viðskiptafræðingur, og fyrir þá sem ekki vita hvað þeir gera, þá getur það verið svona skrifstofuvinna.

Fylgi kannski bara í fótsporin á Hönnu og mömmu og verð bókhaldari. Hversu svalt væri það?

En samt er ég ekki 100% á því hvort að ég fari í skóla. Þannig að ekki gera ykkur of stórar vonir.

 

 

Fer svo að vinna eftir 24 daga!

Í Staðarskála fyrir fólk sem veit ekki hvar ég vinn..

 

 

En ég er að spá í að hafa þetta blogg ekkert lengra.

Fara bara að lesa fyrir skólann..

 

 

Kveð að sinni!

Karólína.. kannski lestarhestur...og kannski viðskiptafræðingur!

 

 

P.S. váá þetta var miklu lengra en það átti að vera;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 20:11:15 / Fannzý

Langt síðan ÉG hef blogað:)

Já halló halló!!

Nú eru páskarnir búnir og ég orðin feitari:S
Ég hélt nú að Nína hafi ætlað e-ð að hittast.. Een svo heiri ég ekki neitt.... Nú jæja, ég mana hinsvegar Kristínu að hafa mat á morgun! Það geetur ekki verið að hún hafi betra að gera...;)
En páskarnir hjá mér voru bara góðir og allt gott að frétta af mér:) Karó var nú í Staðaskála að vinna, örugglega MJÖG leiðinlegt.. Veit nú ekkert hvað hinar voru að gera... Nína öruglega bara með honum Arnóri sínum sem er náttlega bara gott sko:)

En Ætlaði bara að skella einu blogi því ég hef ekki blogað svo lengi:)


Jájá stelpur við verðum að fara að hittast.. Koma svo Kristín það er nærruðí 2 vikur síðan þú áttir að hafa mað, verður að farað koma sko..

En ég ætla að segja þetta gott núna, skítt blog betra en ekkert blog;);) það finnst mér allavega:):*


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 18:57:25 / Kristín

Jújú annað afmæli..:)

Í dag á okkar elskulega Nína afmæli..;**:) til lykke með það Nína okkar..:) ..og jújú hún er komin með bílpróf, alveg hreint fyrirmyndarökumaður þannig ykkur ætti alveg að vera óhætt að fara leiðar ykkar án þess að þurfa óttast um að stúlkan keyri yfir ykkur..;)

En annars var ég fyrir löngu búin að panta að blogga um eitt sérstakt málefni sem er búið að gleðja okkur stúlkurnar í Ljótum Svip alveg óheyrilega mikið, alla veganna okkur Ingibjörgu..:)

En þannig er nú í pottinn búið að ein okkar (eða ætti ég kannski að segja ein og 1/2 okkar eða ein og tvær 1/2 okkar..nei maður spyr sig) í Ljótum Svip er bara ekki svo laus og liðug lengur...nóbbs afmælisbarn dagsins hún Nína er nebbla loksins búin að staðfesta samband sitt við Arnór nokkurn Inga.

Jújú en held reyndar að flestum hafi verið farið að gruna að það hlyti að fara koma að þessu þar sem er varla hægt að slíta hjónin í sundur í nokkra tíma gvuð hvað þá HEILA sundhelgi... En já þessar elskur eru semsagt búin að opinbera samband sitt, nú bíðum við bara eftir því að þau opinberi trúlofun sína..;p

Held þetta sé komið got hjá mér, aldrei að vita nema ég bloggi aftur ef eitthvað skemmtilegt er að frétta af hjónunum en að fylgjast með þeim er mitt aðal hobby um þessar mundir..:)

Hilsen Kristín Arna Jónsdóttir.


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 14:28:34 / Nína

Hér hafiði það...

Já oki þá ég skal blogga. Ég hef nú sussum ekkert spes merkilegt að segja...

Elskuleg Ingibjörg okkar náði bílprófinu og fær þá bara ökuréttindin á fimmtudaginn, 4 dagar! Til hamingju með það :-* Ég er ekki alveg jafn klár á statusnum á Önnu Fanney, þú kannski bara bloggar eða kommentar, elskan, til þess að "keep us posted" eins og leiðinlegasti sjónvarpskarakter í heimi segir... giskiði nú. Svo eru 9 dagar í mitt próf!! ÍÍÍ..., hvað ég hlakka til ;D

Nóg um bílpróf, í bili... Kristín þú varst búin að pant'að blogga um þetta "jú nó vatt" svo ég bíð spennt, en ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að segja ykkur sniðugt... Ööö mér leiðist eiginlega bara slatta um þessa blessuðu helgi, svo þetta blogg er alveg gersneitt öllum skemmtilegheitum. Jú, you've guessed it, það er vegna þess að það er sundmót, og ég veit að ég er doldið háð, en ég er bara tiltölulega handónýt... :( Ég veit, ég skal bara fara og fela mig, eða kannski bara fá mér líf ;) Einhverjar uppástungur? En allavega ekkert bögg, ok!

Lag vikunnar KLÁRLEGA : Here In Your Arms með hellogoodbye, og orð vikunnar er: Klárlega, allt Alla að kenna...

Já og svo bara svona smá mont í restina, hann Orri litli er Íslandsmeistari í Judo, í undir 36 kg flokki, tíhí, en ég er samt svaka stolt, eini Íslandsmeistarinn í fjölskyldunni :D

En allavega, here's a blog for you... Njótið vel ;P

Nína


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 18:19:59 / Karó

blogg..

Nína við viljum blogg!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 10:27:55 / Karó

Blogg...

Nína ætlaðir þú ekki að blogga um helgina? Jæja helgin er samt ekki búin, enn ég hef ekkert að gera þannig að ég ákvað að skella bara einu litlu eða stóru bloggi hérna inná. Alltaf verið að skamma mann fyrir að blogga ekkert.

En á miðvikudaginn var matur hjá Ingibjörgu. Fengum þar pasta og einhvernegin kjöt með sósu og svo brauð. Gómsætt alveg.
Og auðvitað kom ég lang fyrst, þó að ég hafi ekki komið fyrr en 25 mínútur yfir, en allar hinar komu seint. Nína var svo önnur og svo INGIBJÖRG þriðja. Svona gestrisni! En ég ætla ekki að fara að tuða meira um það.

En á miðvikudag if simmtudag voru svo opnir dagar í VMA. Þá voru bara kenndir fyrstu 2 tímarnir(tvöfaldur 1 tími) og svo klukkan 10 byrjuðu þeir.
Þar var margt ágætt í boði, skráði mig í gömlu dansana á miðvikudeginum, en þeir voru felldir niður, þannig að ég fórbara heim að sofa. Svo á fimmtudeginum þá skráði ég mig í myndvinnslu en hætti svo við að fara þangað, þar sem að ég held að það é bara að taka myndir, og fór í staðinn á fyrirlestur um samkynhneigð. Hann var mjög skemmtilegur, eiginlega bara spjall.

Svo á föstudag var Gettu betur, MA Vs. Verzló. Þetta var mjög spennandi, nema að Verzlingarnir voru yfir allan tímann, en við náðum einhverntíman alveg haug af stigum í röð.
MA náði samt einu aukastigi í lokinn þannig að það var eins stiga munur.

En hverjir eru með okkur Gunna í því að senda Nínu í Gettu betur á næsta ári? Hún vissi alveg slatta af spurningum. og vísendingaspurningar í 1. víspendingu
--------------------------------------------------------------------------------------------------------

Svo váá hvað það er óþolandi að vera andvaka. Fór að sofa 12 í gær(ég veit ég er nörd að fara snemma að sofa um helgar) En ég náði bara ekki að sofna fyrr en um 2 leitið. Ég reyndi að lesa(og ég les ALDREI), horfa á sjónvarpið og stara uppí loftið eeen gat engan vegin sofnað.
   Ég var alveg helvíti pirruð. Já og svo vaknaði ég klukkan 98|

En ég ætla að segja þetta gott bara.
bæbæ:klikk:


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 12:01:06 / Fannzý

HAHAH Verð að segja 1 fyndið....!!!!

Pabbi minn (Stebbi) hringdi í mig í gærkvöldi og sagði mér að Ingibjörg Ragna hefði verið að senda honum sms (og ég náttlega bara whaat??) sem stóð e-ð hæhæ þetta er Ingibjörg, hvað segiru? Mannstu eftir mér? Frekar skrítið fyrir hann pabba að fá svona sms þar sem Ingibjörg nánast bjá hjá okkur eða ég hjá henni um langann tíma þannig að hann ætti nú að muna eftir henni... En um leið og hann slefti því að segja hvað stóð í smsinu kveikti ég strax og GRENJAÐI úr hjátri..
Nú svona er nebblega mál með vexti að hún Ingibjörg kinntist strák um síðustu helgi (fínn gaur!!) sem heitir einmitt Stebbi og hún semsagt ætlaði að senda honum smsið en sendi pabba mínum:lol::lol: Svo hringdi ég í Ingibjörgu og sagði henni frá þessu HAHAH og hún fór allveg í Döðlu!! HAHA gott á þig!!! haha!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 20:13:41 / Karó

Þá byrjar keyrslan!

Jæja það er alltaf verið að segja manni að fara að drullast til að blogg þannig að ég ákvað að búa til eitt blogg á meðan ég horfi á Cinderella Story

Fór í ræktina í dag, eftir 2 vikna leti:lol: Fór í combat sem var svolítið erfitt, sérstaklega útaf því að ég gleymdi brúsa.Annars gekk það slysalaust!

Svo fer í minn fyrsta ökutíma á morgun:| Er alveg að deyja úr stressi, þó að Linda segi að ég eigi ekkert að vera að stressa mig, og keyrsla sé það skemmtilegasta sem hægt er að gera. Muna bara að ýta hæææææææægt á kúplinguna á mean maður ýtir á bensínið eða eitthvað svoleiðis. og pabbi segi að þetta verði ekkert mál!

Fyrir hálfum mánuði rúmum var ég fyrir sunnan. Og ég montaði mig EKKI, Ingibjörg spurði meira að segja hvort hún mætti koma í heimsókn. Var þá búin að gleyma því að ég væri fyrir sunnan. Og það gerist nú ekki oft. Ég læt þær alltaf vita reglulega áður en ég fer eitthvert:haha:
Svo eyddi ég alveg helling pening fyrir sunnan. Nokkrum þúsunköllum allavega.

Keypti meðal annars:
4 pör af skóm8|
3 gallabuxur
1 sparibuxur
3 stuttermaboli
1 langermabol(held ég)
1 peysu
2 hlýraboli
1 næstum því hlýrabol
 bland í poka

Já held að það sé þá komið!

Mig vantar samt peysu!

Annars hef ég ekkert meira til að segja.

Blessbless og verið í skólanum á morgun (fyrramálið) því þá verð ÉG AÐ KEEYYRA!!8)


» 14 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 16:14:12 / Fannzý

Tilgangur lífsins

Þeir koma, þeir éta, þeir fara..

það er lífsinssaga

 

.......


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Klukkan